Ákvörðun PFS nr. 25/2015
12. ágúst 2015
Ný gjaldskrá Mílu fyrir skammtímatengingar byggir á leigulínuverðskrá fyrirtækisins. Skammtímatengingar hjá Mílu eru aðallega af tvennum toga. Annars vegar er um að ræða skammtímatengingar vegna sjónvarps, t.d. sýningar af íþróttaleikjum og útsendingar vegna kosninga. Hins vegar er um að ræða skammtímatengingar fyrir farsíma þegar um er að ræða tímabundna aukna bandvíddarþörf t.d. vegna aðstæðna þegar fjöldi fólks safnast saman á litlu svæði.
- Ákvörðun nr. 25/2015 um gjaldskrá Mílu fyrir skammtímatengingar á heildsölumarkaði fyrir stofnlínuhluta leigulína
- Viðauki I - Verðskrá
- Viðauki II - Álit ESA