Útbreiðslukort og tíðnitöflur
Fjarskiptakort
Fjarskiptakortin sýna útbreiðslusvæði farsíma- og farnetsþjónustu fyrir GSM, 3G og 4G þjónustu
Á kortunum eru sýnd þau svæði þar sem líklegast er að ná nýtanlegu merki, þannig að hægt sé að tala í farsíma, senda smáskilaboð eða að ná gagnasambandi.
Á kortunum er leitargluggi þar sem hægt er að slá inn heimilisfang.
Rétt er að hafa eftirfarandi í huga þegar kortin eru skoðuð:
- Útbreiðslukortin eru reiknuð út frá spálíkani og miðuð við dreifingu frá kerfum allra fjarskiptafélaganna þannig að ekki er víst að merki náist frá öllum félögunum á þeim stöðum sem kortin sýna að merki náist
- Gera þarf ráð fyrir að t.d. veður, landslag og aðrir hugsanlegir utanaðkomandi þættir geti haft áhrif á dreifingu fjarskiptamerkja til eða frá
- Í spálíkani PFS er miðað við merki utanhúss í 2 metra hæð
- Merki dofnar þegar símtæki er inni í bíl eða inni í húsi, því fjær veggjum eða þaki sem tækið er, því lakara merki næst. Þannig næst merki yfirleitt síst inni í miðju húsi og niðri í kjallara
- Móttaka getur verið mismunandi milli símtækja, þ.e. loftnet símtækja og staðsetning þeirra í tækinu getur verið mjög mismunandi
Mælingar á fjarskiptasambandi á vegum
Kort sem sýna tíðnir/rásir og staðsetningar allra FM, hljóðvarpssenda og UHF/VHF sjónvarpssenda auk töflu yfir fjölvarpsrásir.
Staðsetning og tíðnir sjónvarpssenda:
Staðsetning og tíðnir hljóðvarpssenda (FM):
Fjölvarp - tafla:
Vefsíður símafyrirtækjanna sem sýna dreifingu farsímakerfsins hjá viðkomandi þjónustuaðila.
- Síminn - dreifikerfi GSM og 3G
- Vodafone - dreifikerfi GSM, 3G og 4G
- Nova - þjónustusvæði 3G og 4G
- 365 - þjónustusvæði GSM (Notar dreifikerfi Símans)
