Alþjóðasamstarf
Póst- og fjarskiptastofnun tekur þátt í margvíslegu erlendu samstarfi sem leiðir af alþjóðlegum skuldbindingum Íslands á sviði fjarskipta- og póstmála. Slíkt samstarf hefur mikla þýðingu fyrir hag íslenskra neytenda, fyrirtækja og stjórnvalda.
Hæst ber samstarf við stofnanir innan Evrópusambandsins í gegnum EES samninginn og öflugt samsstarf við systurstofnanir PFS á Norðurlöndum, ekki síst varðandi söfnun og vinnslu tölfræðigagna og netöryggismál. PFS tekur einnig virkan þátt í starfi helstu alþjóðastofnana á sviði fjarskipta- og póstmála.
Listi og tenglar á samstarfsaðila PFS innanlands og utan.