Þriðjudaginn 3. apríl 2007 kl. 11.00 voru opnuð tilboð í tíðniheimildir fyrir starfrækslu tveggja nýrra GSM 1800 farsímakerfa hjá Póst- og fjarskiptastofnun. Tilboðin voru opnuð að viðstöddum fulltrúum bjóðenda og fulltrúum fjölmiðla. Útboðið var auglýst 2. febrúar 2007.
Fjögur fyrirtæki lögðu fram tilboð, tvö erlend og tvö íslensk:
Amitelo AG (Sviss), BebbiCell AG (Sviss), Núll-Níu ehf og IP fjarskipti ehf.
Allt að tveimur umsækjendum verður úthlutað tíðniheimildum.
Sérhver tíðniheimild gildir fyrir allt landið og mun fela í sér eitt eftirtalinna tveggja tíðnisviða, sem hvert um sig er samtals 2 x 7,4 MHz , alls 14,8 MHz:
1) 1751,1-1758,5 MHz / 1846,1-1853,5 MHz
2) 1758,7-1766,1 MHz / 1853,7-1861,1 MHz
Heildarstigafjöldi bjóðenda skv. tilboðum:
Amitelo AG |
127,5 stig |
BebbiCell AG |
123,0 stig |
Núll-Níu ehf |
118,0 stig |
IP fjarskipti ehf |
97,5 stig |
Útreikningur stiga fyrir umsóknir
Stigafjöldi umsóknar er reiknaður á þann veg að prósentutala útbreiðslu við hvorn áfanga fær mismunandi vægi þannig að því fyrr sem útbreiðslu er náð fást fleiri stig. Uppgefnar tölur um útbreiðslu og uppbyggingarhraða voru lesnar upp við opnun tilboða ásamt útreiknuðum stigum fyrir hvert tilboð.
Sjá nánar:
- Útboðsauglýsing frá 2. febrúar 2007
- Útboðslýsing (PDF)
- Fundargerð frá opnun tilboða 3.apríl 2007(PDF)
Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, s. 510-1500, t-póstur: hrafnkell@pfs.is
Til baka