Netöryggissveitin CERT-IS er sjálfstæð eining innan Póst- og fjarskiptastofnunar og hefur það hlutverk að greina netógnir, viðhafa ástandsvitund, upplýsa um netógnir og samræma viðbrögð við netatvikum í netumdæmi Íslands. Mun Guðmundur koma til með að leiða starfsemi sveitarinnar og áframhaldandi uppbyggingu hennar. Hann mun einnig bera ábyrgð á samskiptum við hagaðila, fjölmiðla og alþjóðleg CERT-teymi.
Guðmundur er með B.Sc próf í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands og útskrifaðist árið 2008 með M.Sc próf í fjarskiptaverkfræði, með sérhæfingu í net- og upplýsingaöryggi, frá Háskólanum í Karlsruhe í Þýskalandi. Hann hefur þrettán ára reynslu af störfum á fjarskiptamarkaði. Guðmundur starfaði fyrir Burðarnet og Farsímakjarna Vodafone til ársins 2013 og síðan sem deildarstjóri Netlausna Nýherja til 2017. Þá starfaði hann á árunum 2017-2019 sem svæðisstjóri fyrir net- og öryggisdeild 5G þróunarumhverfa fyrir Ericsson í Gautaborg ásamt því að sitja í global arkitektaráði netöryggismála fyrir sömu deild.
Hann flutti aftur heim til Íslands árið 2019 og hefur starfað síðan sem deildarstjóri
Net- og Samskiptalausna Origo.
Guðmundur tekur til starfa sem forstöðumaður CERT-IS í febrúar nk.