Ákvörðun PFS nr. 22/2017
Ákvörðun þessi byggir á ákvörðun PFS nr. 20/2015, dags. 31. júlí 2015, um útnefningu fyrirtækja með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á heildsölumörkuðum fyrir lúkningu símtala í einstökum farsímanetum. Kveðið er á um í hinni nýju ákvörðun að heildsölugjöld fyrir lúkningu símtala í einstökum farsímanetum skuli vera að hámarki 0,97 kr./mín. fyrir tímabilið 1. janúar 2018 til 31. desember 2018. Núverandi lúkningarverð, 1,23 kr. á mínútu, mun gilda áfram óbreytt til og með 31. desember 2017.
Sjá ákvörðunina og viðauka í PDF formi hér fyrir neðan: